13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 597 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

364. mál, rekstrargrundvöllur skuttogara

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Fsp. þessi er borin fram af varaþm. mínum, sem átti sæti á Alþ., meðan ég sat þing Sameinuðu þjóðanna. Ég tel mér engu að síður skylt að gera grein fyrir henni, sem að vísu þarf ekki í löngu máli að gera, því að hún skýrir sig sjálf. Hún er í tveimur liðum.

Það er fsp. til hæstv. sjútvrh. Annars vegar er spurt um það, hve miklu tap togaraútgerðarinnar nam 1972, og í öðru lagi er spurt að því, hvaða ráðstafanir ríkisstj. hyggist gera til þess að tryggja rekstur hinna nýju skuttogara. Báðar eru fsp. þessar um hin mikilvægustu atriði varðandi útgerðina og áreiðanlega mjög fróðlegt að fá við þeim svar.