13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (475)
57. mál, fiskileit úti fyrir Austfjörðum
Fyrirspyrjandi (Sverrir Hermannsson) :
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans, en átti að vísu von á vænni niðurstöðu úr því, sem hann gerir nú sjálfur í þessu sambandi. Svar hans fjallaði að mestu um almenna fiskileit og fiskrannsóknir, en sú þál., sem hann bar fram og fékk samþykkta á sinni tíð, beindist eingöngu að rannsóknum við Austfirði. Að vísu er það rétt, að rækjumið fundust í Berufirði. Ég hygg, að það hafi að vísu ekki verið á vegum Hafrannsóknastofnunar, sem þau voru uppgötvuð fyrst, en það skiptir ekki höfuðmáli. En eftir þeirri samþykkt, sem gerð var á hv. þingi 5. mars 1971, þá er það skoðun mín, og ég vísa til svars hæstv. ráðh., að ekki hafi beinlínis verið unnið eftir henni varðandi rannsóknir við Austfirði. Nú er það rétt, að hér er feiknalega viðamikið mál og framkvæmdaafl skortir víða í þessum sökum. Við þurfum að leggja stóraukna áherslu á rannsóknir í þessu efni um land allt, en ég hefði vænst þess eftir þessa ályktun, sem þingið gerði 1971, að beinlínis hefði afli verið beint að því, að rannsakað yrði nákvæmar um Austfirði, hvernig hagar til um t. d. rækjugöngur og humar einnig, þótt því sé haldið fram, að hann sæki ekki þangað, og sér í lagi skelfisk.
Ég tek það fram, að mér sýnist ekki, að framkvæmd þessarar þál. sé með þeim hætti, sem maður hefði getað vænst eftir orðanna hljóðan í samþykktinni sjálfri.