14.11.1973
Efri deild: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 618 í B-deild Alþingistíðinda. (493)

97. mál, bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu

Frsm. (Björn Fr. Björnsson) :

Herra forseti. Allshn. hefur athugað frv. það, sem hér er til 2. umr. Um efni þess og undanfara frv. hefur verið mjög rætt, bæði hér í hv. d. og eins í Sþ., og tel ég þess vegna óþarft að fjalla frekar um það. N. samþykkir að mæla með framgangi þessa frv., en einn nm. var fjarverandi afgreiðsluna, hv. þm. Geir Gunnarsson.