22.11.1973
Sameinað þing: 23. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 844 í B-deild Alþingistíðinda. (710)
Umræður utan dagskrár
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég get tekið undir það, sem hv. 8. landsk. sagði hér áðan, að það er dálítið hættulegt að gera svo skyndilegar breytingar eins og hér hefur verið lýst. Hæstv. forsrh. sagði áðan, að ríkisstj. hefði gert samþykkt um tiltekin skip, að þau fengju fyrirgreiðslu gegn því, að kaupendur legðu fram 15%. Og áður en frv. var lagt fram um heimild fyrir ríkisstj. til þess að ábyrgjast þessi skipakaup, var það rætt í þingflokkunum. Það var rætt í þingflokki sjálfstæðismanna og það var gengið út frá því, a. m. k. af flestum þar, að þeir menn, sem keyptu skipin, fengju sömu fyrir greiðslu og verið hefur, þ. e. að þeir legðu sjálfir fram 15%, 6% lán fengist úr Byggðasjóði, 67% úr Fiskveiðasjóði og 13% að öðrum leiðum.
Tveir Vestmanneyingar hafa gert kaupsamning í Noregi um stór skip, ekki aðeins loðnuskip, heldur skip til þess að stunda alls konar veiðar, síldveiði, þorskveiði og loðnu, ef hún kemur. Þeir hafa lagt í viðskiptabanka 15% vegna skipakaupanna. Meira fé hafa þeir ekki. Þetta eru duglegir skipstjórar, miklir aflamenn. Vestmannaeyjaflotinn hefur rýrnað, það hafa margir bátar úr Vestmannaeyjum strandað og brotnað, m. a. vegna þess, sem gerðist á s. l. vetri vegna hafnleysis. Þess vegna er það m. a. að nauðsynlegt er að fá þessa báta til Vestmannaeyja.
Ég vænti þess, að ríkisstj. hlutist til um, að það verði staðið við samþykkt hennar, þótt hún hafi ekki vald, eins og hæstv. forsrh, sagði áðan, að fyrirskipa Framkvæmdastofnuninni að koma með féð, þá hefur hæstv. ríkisstj. vald til að gera ráðstafanir til, að hún geti staðið við fyrri samþykktir sinar. Ef fé er ekki til í Byggðasjóði, verður hæstv. ríkisstj. að útvega fé til þess að endurlána þessi 3%, sem vantar. Ég sé ekki, að hæstv. forsrh. geti verið hér í ræðustólnum kinnroðalaust, ef það upplýsist, að ríkisstj. hefur gert ákveðna samþykkt og svo er það Stofnunin, sem ætlar að gera ríkisstj. ómerka af þeirri samþykkt, sem hún hefur gert. Og það eru ekki góð vinnubrögð hjá Framkvæmdastofnuninni að gera fyrst samþykkt, sem heimilar 5% lán, og síðan að halda annan fund nokkrum dögum seinna og breyta fyrri ályktun og blekkja þannig menn, sem leggja allt sitt fram til þess að ná skipum til landsins, sem vantar í margar verstöðvar.
Herra forseti. Ég skal ekki misnota tímann. En ég beini því alvarlega til hæstv. forsrh., að hann beiti sér fyrir því, að lánið verði útvegað. Það eru 3–3.6 millj. á bát, og þetta eru ekki 10 bátar, sem hér er um að ræða, sennilega ekki nema 7 bátar.