25.10.1973
Sameinað þing: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

340. mál, laxveiðileyfi

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðason):

Herra forseti. Svar mitt við þessari fsp. er ósköp stutt og einfalt, það er nei. Það hefur engin ríkisstofnun á vegum fjmrn. sérstök hlunnindi um laxveiði eða önnur vegna sinna starfsmanna. Þau litlu hlunnindi, sem áður voru, voru afnumin með síðustu kjarasamningum, og að því leyti sem tekur til þess banka, sem tilheyrir landbrn., hefur landbrn. ekki gefið út nein hlunnindi þar.