25.10.1973
Sameinað þing: 7. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í B-deild Alþingistíðinda. (77)

340. mál, laxveiðileyfi

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. 10. þm. Reykv., að auðvitað er hér um skattskyldar tekjur að ræða, og ég efast ekkert um, að bændur, sem eiga Norðurá, telja þær fram, og að því er ég best veit, þá leigir Stangveiðifélag Reykjavíkur þetta af þeim. Útleigur þeirra er mér ekki kunnugt um, því að ég er lélegur laxveiðimaður og illa að mér í faginu.