28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í B-deild Alþingistíðinda. (819)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Gils Guðmundsson):

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Reykjavík, 27. nóv. 1973.

Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Tómas Karlsson ritstjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.

Þórarinn Þórarinsson,

4. þm. Reykv.

Tómas Karlsson ritstjóri hefur áður setið á Alþ. á þessu kjörtímabili, og hefur rannsókn á kjörbréfi hans farið fram. Býð ég hann velkominn til starfa.