28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 934 í B-deild Alþingistíðinda. (829)
107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973
Guðlaugur Gíslason:
Herra forseti. Ég hafði gert ráð fyrir, að meira svigrúm mundi gefast til þess að koma fram aths. og brtt. við það nál., sem hér hefur verið útbýtt í dag og nú hefur með afbrigðum verið tekið til 2. umr. Ég vil leyfa mér að fara fram á við forseta, að frv. verði a. m. k. ekki afgreitt úr þessari d. við 3. umr. í dag, því að þetta mál er vissulega þess eðlis, að óhjákvæmilegt er a. m. k. fyrir mig að ræða það nokkru nánar.
Eins og hv. frsm. greindi frá, er tillagan um lántökuheimild til hafnarframkvæmda, sem nú er lagt til, að komi í frv., umfram þá lántökuheimild, sem er að finna í sjálfu frv. Ber þetta vissulega að með alleinkennilegum hætti, og eins og hann sagði, er það vegna Vestmannaeyjagossins.
Ég verð að rifja það upp, að á Alþ. í vetur fluttu þm. Sunnl. allir till. um, að skipuð yrði n. manna til þess að kanna möguleika á staðsetningu nýrrar hafnar á suðurströnd landsins, ef þannig færi, að höfnin í Vestmannaeyjum færi forgörðum vegna þeirra náttúruhamfara, sem þá stóðu yfir. Einhvern veginn fann hæstv. þáv. samgrh. það út úr þessari samþykkt Alþingis, að þetta gæti einnig náð til áframhaldandi uppbyggingar annarra hafna, bæði á suðurströnd landsins og Reykjanesskaganum, þ. e. a. s. í Þorlákshöfn, Grindavík og Höfn í Hornafirði. Mér hefur alltaf verið það ráðgáta, hvernig hægt er að túlka jafnákveðna tillgr. og var að finna í okkar þáltill., þar sem margundirstrikað var í grg., að nefndarskipunin ætti aðeins að ná til staðsetningar nýrrar hafnar á Suðurlandi, að þetta skuli einnig ná til annarra hafna. Þetta hefur mér alltaf verið ráðgáta. En einhvern veginn hefur hæstv. þáv. samgrh. tekist að túlka þetta þannig og fengið n. til að vinna eftir þessari sinni túlkun. Ég hygg, að ef málið er skoðað eins og það raunverulega lá fyrir Alþ. og var samþ. og afgr. héðan úr Sþ. í fyrravetur, þá séu þessi vinnubrögð í engu samræmi við þann yfirlýsta vilja, sem fram kom í nefndri till. okkar þm. Sunnl. Þetta mál hefur af þessum ástæðum valdið bæði vonbrigðum og nokkrum sárindum í Eyjum. Vestmanneyingar vilja sannarlega stuðla að uppbyggingu á höfnum landsins, á Suðurlandssvæðinu jafnt og annars staðar, en þeir vilja ekki láta misnota nafn sitt og aðstöðu, eins og svo herfilega er gert í till. þeirrar n., sem hæstv. samgrh. skipaði.
Það liggur fyrir, að þrátt fyrir það að svo vel fór, — sem Vestmanneyingar og landsmenn allir geta verið mjög ánægðir yfir, að höfnin í Vestmannaeyjum bjargaðist, fór ekki forgörðum, meðan eldgos geisaði þar á s. l. vetri og fram eftir vori, — og þrátt fyrir það að við fáum hvað innsiglingu snertir jafnvel betri höfn út úr þessum náttúruhamförum, þá er mjög margt, sem þarf að gera innan hafnar. Vitamálastofnunin hefur á undanförnum mánuðum unnið að því skv. heiðni hafnarnefndar Vestmannaeyja, að gera áætlun um skipulag hafnarinnar, og liggur það nú fyrir í stórum dráttum, frumdráttum. Var þetta eitt af þeim málum, sem rædd voru á síðasta bæjarstjórnarfundi í Vestmannaeyjum, sem haldinn var fyrir rúmri viku. Þar var gerð einróma svofelld ályktun, sem ég vil leyfa mér að kynna hér, en hún hljóðar þannig:
„Með vísun til fyrirhugaðrar lántöku hjá Alþjóðabankanum til hafnarframkvæmda samþykkir bæjarstjórn að gera þá kröfu til stjórnvalda, að hluta af þessu fé verði varið til fyrirhugaðra hafnarframkvæmda í Vestmannaeyjum fyrst og fremst, þar sem fyrir liggur, að bátafloti Vestmannaeyja er nú fluttur heim að langmestu leyti og margvíslegar endurbætur á höfninni liggja fyrir.“
Ég undirstrika það, sem kom fram hjá hv. frsm. fjhn., að þetta lán er fyrst og fremst fengið vegna náttúruhamfaranna í Eyjum. Ég hygg, að lánveitenda mundi þykja alleinkennilegt, ef hann frétti það, að þrátt fyrir nauðsyn endurbóta á höfninni í Vestmannaeyjum, þá sé það eina höfnin hér sunnanlands af hinum stærri höfnum, sem skilin er eftir, þegar á að fara að úthluta þessu fé. Ég veit alls ekki, hvernig Alþingi Íslendinga væri stætt á því að afgreiða málið á þann veg, sem hér er ætlast til. að sé gert, ef það ætlar að halda virðingu sinni gagnvart Alþjóðabankanum og þeim mönnum, sem þar ráða.
Ég skal nú ekki í þessum umr. tefja þetta mál frekar, en aðeins benda á þessar staðreyndir, að ég tel útilokað, að málið verði afgreitt hér í þessari hv. d. á þann veg, sem hv. form. fjhn. hefur lagt til, þ. e. að það yrðu aðeins tilgreindar þessar 3 hafnir. Mér gafst því miður ekki svigrúm til að koma fram með brtt. á þann veg, sem ég hefði talið eðlilegast og best, en mun þó gera það á þessum fundi nema hæstv. forseti fallist á að fresta þessu máli til næsta fundar.