28.11.1973
Neðri deild: 30. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 938 í B-deild Alþingistíðinda. (833)

107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973

Forseti (Gils Guðmundsson) :

Vegna ummæla hv. 2. þm. Vestf. í upphafi ræðu hans vil ég aðeins taka þetta fram: Það var samkv. ósk minni, að honum var gert viðvart um það, að þetta mál væri komið hér á dagskrá, þar sem ég vissi, að hann hafði hug á því að ræða málið. Ég vil svo aðeins ítreka það, sem ég hef áður sagt, að ég tel algerlega eðlilegt, að hv. þd. taki sér þann tíma, sem nægur má teljast, til þess að afgreiða þetta mál, og mun ekki reka á eftir með neinum óeðlilegum hætti.