28.11.1973
Sameinað þing: 26. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 953 í B-deild Alþingistíðinda. (837)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Eysteinn Jónsson) :

Mér hefur borist svohljóðandi bréf:

„Ragnar Arnalds, formaður þingflokks Alþb., 4. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið :

„Þar sem Bjarnfríður Leósdóttir, 2. varamaður Alþb. í Vesturlandskjördæmi, er nú í sjúkrahúsi, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 3. varamaður Alþb. í Vesturl., Guðmundur Þorsteinsson bóndi, Skálpastöðum, taki sæti á Alþ. í forföllum hennar.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.

Ég vil biðja hv., kjörbréfanefnd að skoða kjörbréfið. — (Fundarhlé.)