03.12.1973
Neðri deild: 32. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í B-deild Alþingistíðinda. (861)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Aðeins nokkur orð til þess að gefa frekari upplýsingar en þegar hafa komið fram hjá hæstv. forsrh. um þetta mál. Það er rétt, sem hann skýrði frá, að það mun vera liðinn rúmur mánuður, síðan sjútvrn, skipaði sérstaka 5 manna n. til þess að kanna mannaflamál sjávarútvegsins á komandi vertíð eða hvaða horfur væru þar á. Er unnið að þessari athugun í nánu samráði við samtök sjávarútvegsmanna og með fulltrúum frá þeim. Menn hafa verið sendir til ýmissa verstöðva úti á landi til að kanna þetta og aflað og beðið um skýrslur frá ýmsum stöðum til þess að fá sem nánast yfirlit um málið. En n. hefur ekki enn lokið störfum, og því er í rauninni ekki hægt að skýra frá því á þessu stigi málsins, hversu alvarlegt vandamál hér er um að ræða, borið saman við það, sem við höfum áður haft í hliðstæðum tilfellum.
Á vegum sjútvrn. var gerð skyndikönnun hér á aðalvetrarvertíðarsvæðinu á s. l. vertíð, og þá kom í ljós, að talið var, að það vantaði nokkuð yfir þúsund menn til starfa, bæði á sjó og í landi, svo að vel gæti talist mannað í störfin. Það er því í rauninni ekki nýtt, að það vanti meira eða minna af fólki. Þetta leysist síðan oft, þegar kemur fram á vertíðina. En hér er vissulega um vandamál að ræða, sem við höfum gert okkur grein fyrir. En við þurfum að fá sem skýrasta mynd af því, hvernig þetta er í rauninni.
Það er enginn vafi á því, að þetta vandamál er langsamlega mest á tilteknum stöðum hér suðvestanlands. Það er einmitt á þeim útgerðarbæjum, sem fram til þessa hafa að verulegu leyti byggt á aðkomnu vinnuafli. En sú breyting hefur orðið á nú síðustu árin, að allmikið af því vinnuafli, sem kom til verstöðvanna hér suðvestanlands frá Austfjörðum og Norðurlandi og jafnvel Vestfjörðum, þetta vinnuafl kemur ekki, þar sem það hefur nóg að sýsla heima hjá sér, og þetta bitnar því miklum mun meir á útgerðarrekstrinum á þessum einstöku stöðum suðvestanlands en annars staðar. Auk þess er það svo líka, að á þessu svæði er um miklu stærri og meiri framkvæmdir að ræða, sem taka upp á tiltölulega stuttum tíma mikið vinnuafl og draga vinnuafl til sín, svo að vandamálið er hér tiltölulega mest.
Þá er einnig þess að geta, að á vegum sjávarútvegsins sjálfs eru stórkostlega miklar framkvæmdir í gangi nú, eins og við uppbyggingu og endurnýjun í frystihúsum, og í það fer vitanlega allmikið vinnuafl.
En sem sagt, það er von á því, að myndin af þessu ástandi liggi miklu skýrar fyrir nú innan tíðar. Þessi n. var sett á laggirnar að frumkvæði sjútvrn. og í beinu samráði við L. Í. Ú., sem þarna á fulltrúa og fylgist því alveg með því, hvernig að málinu er unnið.
Þetta vildi ég láta koma fram, en það verður fylgst með því og kannað, til hvaða ráða helst er hægt að grípa í tilfellum eins og þessum.