04.12.1973
Neðri deild: 35. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 999 í B-deild Alþingistíðinda. (884)

107. mál, lántökuheimild vegna framkvæmda- og fjáröflunaráætlunar 1973

Forseti (Gils Guðmundsson) :

Ég vil aðeins geta þess, að vegna funda í Sþ. verður því aðeins hægt að ljúka þessu máli, að það komi í ljós, að hv. þm. séu að mestu leyti búnir að ljúka því, sem þeir hafa um málið að segja, en ella verður afgreiðslunni að sjálfsögðu frestað, þar sem þetta er fyrst og fremst fundardagur sameinaðs Alþingis.