04.12.1973
Sameinað þing: 29. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1000 í B-deild Alþingistíðinda. (887)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Eysteinn Jónsson) :

Hv. 4. þm. Austf. hefur kvatt sér hljóðs utan dagskrár, en ég vil biðja um samvinnu hans og annarra um það að halda sig við fyrirspurnaþingsköp, því að það hníga engin rök til þess, eins og ég vænti, að allir sjái, að umr. utan dagskrár hafi algeran forgang og alger forréttindi fyrir því efni, sem þm. hafa undirbúið og beðið eftir afgreiðslu á langtímum saman.