04.12.1973
Sameinað þing: 29. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1004 í B-deild Alþingistíðinda. (891)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Eysteinn Jónsson) :

Ég vil biðja hv. þm. að skilja það með mér, að það eru engin rök fyrir því, að almennar umræður um húsnæðismálalán geti gengið fyrir þeim 44 málum, sem eru á dagskránni eftir venjulegri þingreglu. Ég mun gefa hæstv. félmrh. orðið til þess að gera stutta athugasemd, en þar með er þessum umr. lokið.