18.07.1974
Sameinað þing: 1. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (10)

Drengskaparheit unnið

Aldursforseti (Guðlaugur Gíslason):

Nýkjörnir þm., sem ekki hafa tekið sæti á Alþingi áður, hafa undirritað drengskaparheit sitt, og vil ég bjóða þá sérstaklega velkomna til þingsetu.

Þá ber skv. fundarsköpum að kjósa forseta sameinaðs Alþingis, en komið hafa tilmæli um, að kjöri forseta verði frestað um sinn, og mun ég verða við þeim tilmælum. Fundi er frestað þar til kl. 2 e.h. n.k. mánudag, 22. þ. m.