04.09.1974
Efri deild: 14. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 190 í B-deild Alþingistíðinda. (186)

10. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis

Frsm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Allshn. tók til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. um samkomudag reglulegs Alþingis, nr. 3 frá 14. febr. 1967. N. ræddi frv. nokkuð, og meiri hl. n. leggur til. að frv. verði samþ. óbreytt. Geir Gunnarsson leggur til, að frv. verði fellt, en Eggert G. Þorsteinsson tók ekki afstöðu til frv.