04.09.1974
Neðri deild: 14. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

6. mál, fjáröflun til vegagerðar

Landbrh. (Halldór E. Sigurðason):

Herra forseti. Mér er það ljóst, að það mál, sem lagt er til að veita fé til með þessari till., er hið mesta nauðsynjamál, og ég tel brýna nauðsyn bera til að leita að leiðum til þess að leggja því máli lið. Hins vegar vil ég taka undir það, að Vegasjóður hefur ekki möguleika til þess að bæta á sig verkefnum, því að svo skortir hann fé til að sinna þeim verkefnum, sem hann hefur nú, og verður því að skoða þetta mál síðar. Ég segi því nei við þessari till.