05.09.1974
Efri deild: 21. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 246 í B-deild Alþingistíðinda. (263)

Starfslok efri deildar

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ég þykist vita, að ég mæli fyrir hönd allra hv. þdm., er ég þakka hæstv. forseta Ed. góðar óskir okkur til handa og votta honum um leið þakkir okkar fyrir góða fundarstjórn og ánægjulegt samstarf. Ég óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og vona, að við megum allir aftur hittast heilir að hausti. Ég bið hv. þdm. að taka undir orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingdeildarmenn risu úr sætum.]