05.09.1974
Neðri deild: 18. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 270 í B-deild Alþingistíðinda. (276)

10. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra forseti. Allshn. hefur tekið þetta frv. til meðferðar, og meiri hl. n. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt. Hv. þm. Svava Jakobsdóttir leggur til, að frv. verði fellt, en hv. þm. Sighvatur Björgvinsson tekur ekki afstöðu til málsins. Einn hv. þm., Páll Pétursson, var fjarverandi þessa afgreiðslu nefndarinnar.