05.09.1974
Sameinað þing: 7. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í B-deild Alþingistíðinda. (289)
Þinglausnir
Forseti (Eðvarð Sigurðsson):
Hér kemur fyrst yfirlit um störf Alþingis:
Þingið hefur staðið frá 18. júlí til 5. sept. 1974, alls 50 daga.
ÞINGFUNDIR hafa verið haldnir:
Í neðri deild .......................... 19
Í efri deild . ........................... 21
Í sameinuðu þingi ...7
Alls 47
ÞINGMÁL og úrslit þeirra:
I.Lagaframvörp:
Stjórnafrumvörp:
a.Lögð fyrir neðri deild .........5
b.- – - efri deild ............ .3
Alls 8
Úrslit urða þessi:
Lagaframvörp:
a. Afgreidd sem lög:
Stjórnarfrumvörp ................ 7
b.Ekki útrætt:
Stjórnarfrumvarp ................ 1
8
II.Þingsályktunartillögur:
Bornar fram í sameinuðu þingi ...... 2
Úrslit urðu þessi:
a. Ályktun Alþingis ................ 1
b. Ekki útrædd .................... 1
2
Mál til meðferðar í þinginu alls .... 10
Tala prentaðra þingskjala .......... 58
Komið er að lokum þessa sumarþings. Það var kvatt saman til sérstakra starfa á þjóðhátíðarári í tilefni 1100 ára afmælis Íslandsbyggðar. Hátíðafundarins á Þingvöllum mun lengi minnst. Þing þetta var háð að nýloknum alþingiskosningum. Ný ríkisstj. er komin til valda. Annað verkefni þingsins hefur því verið að afgreiða þau mál. sem ríkisstj. hefur talið nauðsynleg. Ekki hafa allir verið á eitt sáttir um afgreiðslu þessara mála. En öll vonum við, að farsællega leysist sá vandi, sem að þjóðinni steðjar.
Ég þakka hv. þm. gott samstarf, starfsfólki Alþingis þakka ég ágæt störf, þm. óska ég góðrar heimferðar og heimkomu, og von mín er sú, að við hittumst öll heil í haust á nýju þingi.
Landsmönnum öllum óska ég gæfu og gengis. Iðnrh.