05.09.1974
Sameinað þing: 7. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í B-deild Alþingistíðinda. (292)
Þinglausnir
Forsrh. (Geir Hallgrímsson):
Herra forseti. Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:
Alþingi, 95. löggjafarþing, hefur lokið störfum. Ég veiti hér með forsrh. Geir Hallgrímssyni umboð til þess að slíta Alþingi í dag.
Gjört í Reykjavík, 5. september 1974.
Kristján Eldjárn.
Geir Hallgrímsson.
Forsetabréf um þinglausnir.“
Samkvæmt þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er glitíð. Óska ég þm. velfarnaðar, þjóðinni allra heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að risa úr sætum.
Þingheimur stóð upp, og forsrh. Geir Hallgrímsson mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Tóku þm. undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.
Var síðan af þingi gengið.