08.08.1974
Neðri deild: 3. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

2. mál, viðnám gegn verðbólgu

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Það frv., sem hér liggur fyrir til umr., er til staðfestingar brbl. um tímabundnar ráðstafanir til viðnáms gegn verðbólgu. Þau brbl. hafa takmarkaðan gildistíma, renna út um næstu mánaðarmót. En frv. til staðfestingar þeim er að sjálfsögð^i lagt hér fyrir Alþingi samkvæmt fyrirmælum stjórnarskrárinnar. Ég tel ekki ástæðu til á þessu stigi að fara að ræða efnislega brbl. né ráðstafanir samkv. þeim, en vil leyfa mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.