18.07.1974
Sameinað þing: 1. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 6 í B-deild Alþingistíðinda. (8)

Rannsókn kjörbréfs

Aldursforseti (Guðlaugur Gíslason):

Fleiri hafa ekki kvatt sér hljóðs, og er umræðum lokið. Framsögumenn kjördeilda hafa hver fyrir hönd sinnar deildar lagt til, að þau kjörbréf, sem deildirnar hafa haft með höndum, verði samþykkt og tekin gild, og verða tillögur framsögumannanna bornar upp í einu lagi, ef enginn hreyfir mótmælum.