22.08.1974
Neðri deild: 8. fundur, 95. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (93)

6. mál, fjáröflun til vegagerðar

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Vegna þeirra orða, sem féllu nú síðast í ræðu hv. samgrh., vil ég aðeins taka það fram, að þótt 1. þm. Sunnl. hafi átt hönd í bagga um samninga þessa frv., þá er ekki ég og ég veit ekki til neinn annar af þm. Sjálfstfl. bundinn af því samkomulagi eða þeirri gerð.