20.12.1974
Sameinað þing: 28. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1268 í B-deild Alþingistíðinda. (1085)

127. mál, frestun á fundum Alþingis

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Samkv. venju á þessum árstíma er hér flutt till. til þál. um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkv. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Samráð hefur verið haft við þingflokka um efni þessarar þáltill., og hef ég ekki ástæðu til að ætla annað en samstaða sé um till. Ég sé því ekki ástæðu til að gera till. um að henni verði vísað til n., en vænti þess að hún fái jákvæða afgreiðslu.