21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1156)

1. mál, fjárlög 1975

Ellert B. Schram:

Það hefur verið tekið fram í umr. um þetta fjárlagafrv., að við ákvörðun fjárveitingar til Lánasjóðsins og við úthlutun námslána yrði tekið tillit til hækkana og aukins kostnaðar á árinu, þannig að lánin haldi raungildi sínu. Því er jafnframt lýst yfir, að tekið verði tillit til nýs kostnaðarmats, eins og aðstæður leyfa og eins og fjárveitingin reyndar ber með sér. Því er þessi till. sýndarmennska ein og óþörf og ég segi nei.