21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1356 í B-deild Alþingistíðinda. (1161)

1. mál, fjárlög 1975

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Ég hef þann metnað fyrir kaupsýslustétt þessarar þjóðar, að ég kann ekki við að hún sé að leita um opinber framlög til ríkissjóðs, eins og nú er háttað fjármálum íslenska ríkisins. Ég trúi því ekki að þeir geti ekki einhvern veginn aurað saman til þess að standa straum af þessari starfsemi, ef hún er lífsnauðsynleg, og því segi ég nei.