21.12.1974
Sameinað þing: 30. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1360 í B-deild Alþingistíðinda. (1174)

Þingfrestun

Forsrh. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég að tilskyldu samþykki Alþingis veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 96. löggjafarþings, frá 20. des. 1974 eða síðar ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 27. jan. 1975.

Gjört í Reykjavík, 18. desember 1974.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþ. lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis, 96. löggjafarþings, er frestað frá 21. des., og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 27. jan. 1975.

Leyfi ég mér eð árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum góðrar jólahelgi og farsæls nýárs.