27.01.1975
Sameinað þing: 31. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1175)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hinn 13. jan. 1975 var gefið út svo hljóðandi forsetabréf um að Alþ. skuli koma saman til framhaldsfunda:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkvæmt till. forsrh. að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 27. jan. 1975 kl. 14.00.

Gjört í Reykjavík, 13. jan. 1975.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.“

Samkvæmt þessu hefjast nú fundir Alþ. að nýju.

Ég leyfi mér að óska hæstv. forseta Sþ., hv. alþm. og starfsfólki Alþ. gleðilegs árs og þakka þeim samstarf á liðnu ári, um leið og ég býð ykkur velkomin til þingstarfa á ný og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.