28.01.1975
Sameinað þing: 32. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1380 í B-deild Alþingistíðinda. (1196)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason):

Frú Bjarnfríður Leósdóttir hefur áður setið á þingi og þarf ekki að undirrita eiðstaf og býð ég hana velkomna til starfa. En Jón Baldvin Hannibalsson hefur ekki áður átt sæti á þingi og bið ég hann að undirrita eiðstaf.

Jón Baldvin Hannibalsson undirritaði drengskaparheit um að halda stjórnarskrá landsins.