03.02.1975
Neðri deild: 38. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (1274)
138. mál, almannatryggingar
Flm. (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Þetta frv. er tengt hinu fyrra sem ég var að mæla hér fyrir áðan. Fyrra frv. var till. um breyt. á brbl., sem eiga að falla úr gildi 1. júní n.k., og með þessu frv. er lögð til sú skipan sem á að taka við þegar þar að kemur. Í frv. er lagt til í fyrsta lagi að ákvæði, sem er í gildandi l. og kveður svo á að bætur almannatrygginga eigi að hækka innan 6 mánaða frá því að um breytingu á almennum verkamannataxta verður að ræða, því verði breytt þannig að fresturinn verði aðeins einn mánuður. Þannig var framkvæmd þessara laga alla tíð meðan fyrrv. ríkisstj. var við störf. Þessar hækkanir komu alltaf til framkvæmda mánuði síðar en þær komu til framkvæmda á hinum almenna vinnumarkaði. Ég hygg að það sé ekki hægt að finna nein rök fyrir því, að víðskiptavinir almannatrygginga eigi að biða í hálft ár eftir breytingum sem orðið hafa á hinum almenna vinnumarkaði.
Þá er í þessu frv. lagt til að upphæðir þær, sem tilgreindar eru í 19. gr. laganna, þ.e.a.s. tekjutryggingin, breytist ársfjórðungslega í samræmi við vísitölu framfærslukostnaðar, auk þess sem þær breytast að sjálfsögðu í samræmi við almennar grunnkaupsbreytingar, sem um kann að verða samið. Þarna er ætlast til þess að þessar bætur breytist í samræmi við vísitölu, jafnvel þótt svo standi á einhvern tíma að vísitölukerfið sé ekki í gildi á hinum almenna markaði Þessi tvö frv. eru í samhengi. Það fyrra, sem ég mælti fyrir áðan, gildir þann tíma sem brbl. ríkisstj. ná yfir, og með frv., sem nú er til umr., eru hliðstæð ákvæði látin gilda áfram, eftir að brbl. eru fallin niður.
Ég legg til, hæstv. forseti, að frv. verði að lokinni umr. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.