13.02.1975
Neðri deild: 43. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 1771 í B-deild Alþingistíðinda. (1431)

Umræður utan dagskrár

Sverrir Hermannsson:

Virðulegi forseti. Mér kom það mjög á óvart að hv. 9. þm. Reykv. hóf máls á þessu atriði, vegna þess að ég vissi ekki betur en það hefði orðið samkomulag um það að einmitt þetta málefni, sem hann drap á hér, gengi til þfkn. til athugunar. Ég að mínu leyti er ekki reiðubúinn til þess að ræða það að neinu leyti fyrr en n. hefur gefist kostur á að taka afstöðu til þess, eins og samkomulag varð um.