04.03.1975
Sameinað þing: 45. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2092 í B-deild Alþingistíðinda. (1656)
105. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Fyrirspyrjandi (Þorv. Garðar Kristjánsson) :
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans. Hann gat þess, að það væri ákveðið að vísa þessu frv. til umsagnar landshlutasamtaka og húsnæðismálastjórnar ríkisins. Mér þykir rétt að það komi hér fram, að n. sú, sem fjallaði um þetta mál, hv. félmn. Ed., vísaði þessu máli einmitt til umsagnar þessara aðila á síðasta þingi og umsagnir þessara aðila voru jákvæðar. Landshlutasamtökin — þau sem skiluðu áliti, að mig minnir 3 eða 4 — mæltu eindregið með samþykkt frv. Umsögn húsnæðismálastjórnar var mjög jákvæð. Mér sýnist því að það sé naumast ástæða til þess nú að eyða löngum tíma í að leita umsagnar þessara sömu aðila sem þegar hafa tjáð sig um frv. Það var einmitt með tilliti til umsagna þessara aðila, að ég hygg, að allir nm. í hv. félmn. voru sammála um að taka frv. þetta það alvarlega að vísa því til hæstv. ríkisstj. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða, að það var ekki gert af hv. félmn. í þeim tilgangi að svæfa málið, heldur til þess að þoka því áfram.
Ég vil vonast til þess, að það verði ekki beðið lengi eftir þessum umsögnum, þannig að þessi meðferð málsins þurfi ekki að tefja framkvæmdir í málinu, og ég vil mega treysta því að hæstv. ríkisstj. og hæstv. félmrh. geri sitt til þess að eitthvað jákvætt komi út úr málinu.