10.03.1975
Efri deild: 55. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2226 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)
Umræður utan dagskrár
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil að gefnu tilefni sem nm. í iðnn. þessarar hv. d. taka undir það, sem fram kom hjá hv. 4. landsk. þm., þakkir til formanns n. fyrir vel unnin störf. Hann hefur gefið greinargóðar upplýsingar um öll þau atriði sem óskað hefur verið eftir, og ég held að það hefði varla verið á betra kosið. Hitt er annað mál, án þess að ég ætli að fara að blanda mér inn í það einkastríð sem hefur verið á milli hv. 5. þm. Norðurl. e. og formanns, að ég verð að segja að þau samtöl þær umr. og þær óskir, sem fram hafa komið frá hv. 5. þm. Norðurl. e. í þessu máli, hafa verið ómetanlegar, ekki bara mér, ég held öllum nm., og eflaust hjálpað öðrum en mér til þess að mynda sér skoðanir á þessu máli og gera mér þá betur kleift að taka ákvörðun um þetta mál, málmblendiverksmiðjuna. Ég vil þakka þeim báðum fyrir það stríð sem hefur ríkt á nefndarfundunum, sem þó hefur verið í allri vinsemd. Vegna þeirra upplýsinga, sem fram hafa komið frá báðum, og vegna fsp. 5. þm. Norðurl. e., þá held ég að þessir fundir hafi orðið miklu meira virði en þeir hefðu annars orðið.
Ég held að það sé kominn tími til að taka ákvörðun í þessu máli. Ég vona að það dragist ekki mjög miklu lengur. Hitt er annað mál, að ég tel ósk þm. réttmæta. Það hefði verið æskilegt að allar upplýsingar lægju fyrir bæði frá líffræðistofnun Háskóla Íslands og annars staðar frá. En að hans óskum kallaði formaður n. vísindamann frá Líffræðistofnun Háskólans á okkar fund og hann gaf þær upplýsingar, sem hann hafði yfir að ráða fyrirvaralítið. En ég man ekki betur en hjá honum hafi komið fram að það tæki nokkur ár að ljúka til fulls þeim rannsóknum sem hann teldi þurfa að gera til þess að vera öruggur um niðurstöðu. (StJ: 4 mánuði.) Það væri hægt að gera einhverjar frumrannsóknir á skemmri tíma, 4 mánuðum, segir hv. þm. Stefán Jónsson, ég held að það sé rétt. En ég held að það verði ekki þær rannsóknir eða þær niðurstöður sem hann er með í huga þegar hann biður um endanlegar niðurstöður til þess að þær verði þá notaðar sem óyggjandi niðurstöður um endanlega afgreiðslu á þessu máli.
Ég tók það sem gefið mál að þegar þessi vísindamaður hafði mætt á fundum hjá okkur, þá væri hv. 5. þm. Norðurl. e. reiðubúinn til þess að taka afstöðu í þessu máli. En það hefur verið misskilningur. Alla vega spurði ég hann á þeim fundi, hvort það yrði þá síðasta ósk hans í þessu máli, og hann kvað já við. Á fundinum í morgun komu fleiri óskir frá hans hendi, þannig að ég vil nú vona að það sé rangt sem hér hefur komið fram að hann sé með þessum óskum sínum að reyna að tefja og jafnvel draga ákvörðun í þessu máli það lengi að ekki náist endanleg ákvörðun á þessu þingi. En ég trúi ekki, að hann sé að vinna með því hugarfari eða a. m. k. hef ég ekki ástæðu til að ætla það af þeirri fundarsetu sem ég hef átt með honum.
Ég vil enda þessi orð mín með því að láta í ljósi þá von að við séum að komast á leiðarenda í gagnasöfnun í málinu og mjög bráðlega verði þetta mál endanlega afgreitt í okkar n. En ég vil ítreka það, að ég held að það sé erfitt að gera meira til þess að afla upplýsinga og leggja þær fram og útskýra málið en formaður n. hefur gert, og ég er honum þakklátur fyrir. Sjálfur er ég miklu betur inni í málinu en ég annars hefði verið.