29.10.1974
Sameinað þing: 1. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í B-deild Alþingistíðinda. (2)

Forseti Íslands setur þingið

Forseti Íslands (Kristján Eldjárn):

Hinn 11. þ. m. var gefið út svofellt bréf:

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hef ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 29. október 1974.

Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 11. október 1974.

Kristján Eldjárn.

Geir Hallgrímsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar þriðjudaginn 29. október 1974.“

Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.

Ég býð yður öll velkomin til þings og læt þá ósk og von í ljós, að öll störf Alþingis megi takast giftusamlega og verða landi og lýð til blessunar. Að svo mæltu bið ég alþingismenn að minnast fósturjarðarinnar með því að rísa úr sætum.

[Þingheimur stóð upp, og forsætisráðherra, Geir Hallgrímsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ Var tekið undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram, og bið ég aldursforseta, Guðlaug Gíslason, 3. þm. Sunnl., að ganga til forsetastóls.

Forseti Íslands tók sér sæti í þingsalnum, en aldursforseti gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.