03.04.1975
Sameinað þing: 56. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2702 í B-deild Alþingistíðinda. (2037)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Tómas Árnason) :

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Kristjáns Friðrikssonar iðnrekandi í Reykjavík, sem hlaut kosningu sem 2. varaþm. Framsfl. í Reykjavíkurkjördæmi, svo og kjörbréf Braga Sigurjónssonar bankaútibússtjóra á Akureyri, sem hlaut kosningu sem landsk. varaþm., 1. varauppbótarþingsæti Alþfl. Kjörbréfanefnd hefur ekki fundið neina meinbaugi á kjörbréfunum og leggur til, að þau verði samþ. og kosning þeirra Kristjáns Friðrikssonar og Braga Sigurjónssonar tekin gild.