09.04.1975
Efri deild: 64. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2802 í B-deild Alþingistíðinda. (2117)
224. mál, tónlistarskólar
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð sem mig langar að segja um þetta frv. við 1. umr. Ég er að vísu ekki viðbúinn að kryfja frv. til mergjar, því að ég hef naumast lesið það yfir enn þá, en vil aðeins benda á eitt nú þegar sem ég rek augun í og hnýt um. Mér sýnist að gert sé ráð fyrir því að tónlistarskólar séu reknir af einu sveitarfélagi, og ég vil að menn hugleiði hvort ekki muni vera nauðsynlegt að hafa hér annað orðalag, því að viðast hvar um landið mun vera fleiri en eitt sveitarfélag sem standa að rekstri slíkra skóla, og verður sú leið að sjálfsögðu að vera opin. Ég þekki það í minni heimabyggð, þar sem er tónlistarskóli með mjög mörgum tónlistarnemendum, sem eru úr hinum ýmsu sveitarfélögum sýslunnar og skólinn er deildaskiptur til að ná til sem flestra nemenda og hefur kennslu í félagsheimilunum hingað og þangað úti um sýsluna. Þess vegna tel ég að það þurfi að koma inn í frv. að skólinn sjálfur sé skyldaður til þess að hafa eitt eða fleiri sveitarfélög sér að baki eða á annan hátt sem best væri orðað.
En í sambandi við það sem hér hefur aðeins verið rætt um, tónlistarkennslu í barnaskólum, þá vil ég mjög taka undir það, að það er að sjálfsögðu skilyrði þess að tónlistarskólar komi að verulegum notum fyrir unglinga almennt að nemendurnir hafi áður fengið einhverja nasasjón af a. m. k. nótnalestri. Ég held að jafnvel þó að kennaranám sé kannske ekki komið alla leið upp á háa C-ið, þá muni flestir kennarar geta kennt nótnalestur, en það er frumskilyrði þess að nemendur geti notið tónlistarkennslu.
Það hefur minna að segja fyrir starfsemi tónlistarskólans hvort söngkennsla hefur verið iðkuð eða ekki.
Ég þekki það, að nú er mjög víða í skólum farið að kenna börnum að leika á flautur, og það krefst þess að börnin læri nótnalestur. Ég tel mjög mikilvægt að það væri iðkað sem allra víðast.
Erindi mitt var að þessu sinni ekki annað í ræðustól en að vekja athygli á því, að mér sýnist að í frv. þurfi að vera annað orðalag um sveitarfélögin eða gefa því ákveðnara og hentugra form en gert er ráð fyrir. Að öðru leyti vil ég lýsa ánægju minni yfir því að þetta frv. er komið fram, svo að leystur sé sá vandi sem tónlistarskólarnir úti um hinar breiðu byggðir eiga víðast hvar við að búa.