14.04.1975
Sameinað þing: 62. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2875 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. (Tómas Árnason) :

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf þeirra Guðmundar G. Þórarinssonar verkfræðings, sem er 1. varaþm. Framsfl. í Suðurlandskjördæmi, og kjörbréf Sigurðar Blöndals, Hallormsstað, sem er 1. varaþm. Alþb. í Austurlandskjördæmi.

Kjörbréfanefnd hefur ekki séð neina meinbugi á þessum tveim kjörbréfum og leggur einróma til að þau verði samþ. og kosning þeirra Guðmundar G. Þórarinssonar og Sigurðar Blöndals tekin gild.