16.04.1975
Efri deild: 67. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 2943 í B-deild Alþingistíðinda. (2232)

25. mál, meðferð einkamála í héraði

Frsm. (Ingi Tryggvason) :

Herra forseti. Allshn. hefur rætt frv. til l. um breyt. á l. nr. 85 23. júní 1936, um meðferð einkamála í héraði, og leggur einróma til að frv. verði samþ. óbreytt. Það hefur verið leitað skriflegra og munnlegra umsagna um málið, en að öðru leyti vísast til þeirra skýringa sem gefnar voru á þessu máli við framsögu hér fyrr á Alþ.