21.04.1975
Sameinað þing: 66. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3047 í B-deild Alþingistíðinda. (2292)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Ásgeir Bjarnason) :

Mér hefur borist eftirfarandi bréf:

„Reykjavík, 21. apríl 1975. Formaður þingflokks Alþb., Ragnar Arnalds, hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Stefáns Jónssonar, 5. þm.. Norðurl. e., sem farinn er til útlanda í opinberum erindum, leyfi ég mér með skírskotun til 138, gr. laga um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður hans, Soffía Guðmundsdóttir tónlistarkennari, taki á meðan sæti hans á Alþingi.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Eggert G, Þorsteinsson, forseti Ed.

Kjörbréf Soffíu Guðmundsdóttur liggur hér fyrir og ég vil biðja kjörbréfanefnd, að taka kjörbréfið til athugunar og fær kjörbréfanefnd 10 mín. til umráða. — [Fundarhlé.]