21.04.1975
Neðri deild: 69. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3050 í B-deild Alþingistíðinda. (2304)
53. mál, vátryggingasamningar
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson) :
Herra forseti. Þótt einkennilegt sé, þá legg ég þetta frv. fram þó að vátryggingarsamningar heyri að sjálfsögðu undir verksvið annars ráðh. En ástæðan til þess er sú að þetta frv. er alveg nauðsynlegur fylgifiskur með því frv. sem ég var að mæla fyrir áðan. Til samræmis við þá breytingu, sem það frv. gerir ráð fyrir, er nauðsynlegt að gera þá breyt. á lögum um vátryggingasamninga sem í þessu lagafrv. greinir, svo að vátryggingarsali verði samkv. þeim lögum bundinn með sama hætti og tjónvaldur,
Ég held, herra forseti, að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta litla frv., en leyfi mér að óska eftir að því verði vísað til 2. umr., svo og til hv. allshn. eins og síðasta frv., og verði látið fylgja því í meðferð þess.