22.04.1975
Neðri deild: 71. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3116 í B-deild Alþingistíðinda. (2334)

90. mál, dýralæknar

Frsm. (Stefán Valgeirsson) :

Virðulegi forseti. Landbn. Nd. hefur fjallað um þetta frv. og sent það til umsagnar bæði til Búnaðarfélags Íslands og yfirdýralæknis og mæla báðir aðilar með samþykkt þess. Þetta er aðeins breyting á svæðaskiptingu.