30.04.1975
Neðri deild: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3470 í B-deild Alþingistíðinda. (2576)

53. mál, vátryggingasamningar

Frsm. (Ellert B. Schram):

Hæstv. forseti. Þetta frv. var sömuleiðis lagt fram í Ed. og hefur verið afgr. þar eins og það var í upphaflegri mynd. Það er óhjákvæmilegur fylgifiskur þess frv., sem var 25. mál og var hér afgr. á undan. Með hliðsjón af því, sem fram kom í ræðu minni hér á undan, telur n. rétt að samþykkja þetta frv. sömuleiðis.