02.05.1975
Sameinað þing: 72. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3484 í B-deild Alþingistíðinda. (2599)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Tómas Árnason) :

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Guðrúnar Benediktsdóttur, húsfrúr, Grundarási, Vestur-Húnavatnssýslu, sem er 1. varaþm. Framsfl. í Norðurl. v., en hún tekur sæti á Alþ. í fjarveru Páls Péturssonar, 3. þm. Norðurl. v. Kjörbréfan. hefur ekki fundið neitt að kjörbréfinu og leggur einróma til, að það verði samþ. og kosning Guðrúnar Benediktsdóttur tekin gild.