02.05.1975
Neðri deild: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3488 í B-deild Alþingistíðinda. (2613)

81. mál, innflutningur og eldi sauðnauta

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég ætlaði að vera hér viðstaddur þegar þetta frv. var rætt hér við 2. umr., en var það því miður ekki. En ég vil leyfa mér að spyrja hv. landbn. að því, hvort þetta mál hafi verið sent til yfirdýralæknis og hvort álit hans liggi fyrir út af þessu frv. Ég vildi þá gjarnan heyra það, ef það liggur fyrir, hvort hann hefur mælt með þessu frv. eða ekki því að það kæmi mér mjög á óvart ef svo hefði verið, en ætla að bíða eftir svari þar um.