02.05.1975
Sameinað þing: 73. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3504 í B-deild Alþingistíðinda. (2643)

113. mál, öryggisbúnaður flugvalla

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Eins og frsm. hv. allshn. tók fram telja nm. allir þessa till. fyllilega tímabæra og einnig þeir aðilar sem n. hefur leitað umsagnar hjá. Ég vil aðeins leyfa mér að þakka allshn. fyrir störf hennar og frsm. og vænti þess að þessi till. og væntanleg ályktun Alþ. verði til þess að þoka þessum nauðsynlegu málum nokkuð í rétta átt.