07.05.1975
Sameinað þing: 74. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3527 í B-deild Alþingistíðinda. (2654)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Þorsteins Þorsteinssonar vélgæslumanns á Höfn í Hornafirði, sem er 2. varaþm. Alþb. í Austurl. N. hefur ekki aðfinnslur að gera við kjörbréfið og leggur einróma til að það verði samþ. og kosning Þorsteins Þorsteinssonar tekin gild.