07.05.1975
Sameinað þing: 74. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3529 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)

110. mál, nefndarskipan um áfengismál

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Ég vil taka undir þau orð, sem hæstv. dómsmrh. hafði í grg. sinni. Ég vil auk þess láta þá skoðun mína koma fram einu sinni enn þá hér á hæstv. Alþ., sem ég hef margoft látið koma fram í sambandi við mál sem ég hef hér flutt, að ég tel ekki að þessi n. eða nein önnur n. betrumbæti áfengisvandamál þjóðarinnar. Ég tel vera hreinan hégóma að koma með þessa till. og segi því nei.