09.05.1975
Efri deild: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3700 í B-deild Alþingistíðinda. (2810)
265. mál, ráðstafanir vegna breytingar á gengi íslenskrar krónu
Frsm. minni hl. (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Eins og frsm. meiri hl. drap á eru menn eðlilega samþykkir því að þetta frv. nái fram að ganga. En við tveir í n., Stefán Jónsson, hv. þm., og ég, gerum grein fyrir afstöðu okkar í sérstöku nál. á þskj. 818.
Með þessu frv. er ríkisstj. að viðurkenna að hún hafi haft rangt fyrir sér og raunar ekki verið unnt, nema breyta um leið lögum um Verðjöfnunarsjóð fiskiðnaðarins, er hún lagði til í frv. um ráðstöfun á gengishagnaði vegna gengisbreyt. frá 29. ágúst s. l. að taka um 400 millj. af væntanlegum gengismun og verðbæta þannig inneign í Verðjöfnunarsjóðnum. Þessi fyrirætlan var lögfest þrátt fyrir harða gagnrýni hér á hv. Alþ. og einnig gegn mjög ákveðnum mótmælum frá öllum aðilum sjávarútvegsins. En hæstv. ríkisstj. virti allt þetta að vettugi og fór sínu fram um skeið. En nú eftir marga mánuði þóknast þeim háu herrum að leiðrétta misferlið og skila aftur til Verðjöfnunarsjóðsins réttmætri eign sinni.
Það er látið í veðri vaka að vegna þess, hve staða sjávarútvegsins var slæm og aðstoð við hann brýn, sé þetta gert nú. En þrátt fyrir tvær gengisfellingar með stuttu millibili, sem sagt er að gerðar séu til þess að bjarga við stöðu sjávarútvegsins, er meira öngþveiti ríkjandi nd en nokkru sinni. Allur stærri togaraflotinn liggur bundinn í verkfalli og rekstrarmöguleikar fyrir þá gerð skipa virðast lengra undan en áður. Það er engu líkara en ráðamenn hafi gleymt því eða ekki hugað að því að hvert þessara nýju skipa var keypt fyrir erlent lánsfé, jafnvel allt að 90% kaupverðs. Gengisfelling var því ekki lausnarleið fyrir þennan þátt í sjávarútveginum. Það mun vera sjaldgæft að allir aðilar innan raða sjávarútvegsins telji rangt að fella gengið, eins og gert var í febr. s. l. Þrátt fyrir þetta heldur hæstv. ríkisstj. sína leið með þeim afleiðingum er alþjóð er nú kunnugt um. Til þess að halda uppi sæmilegum lífskjörum í landinn höfum við orðið að þiggja hvert lánið á fætur öðru erlendis frá svo að við gætum keypt lífsnauðsynjar og var það sannarlega staðfest í dag með ræðu Seðlabankastjórans á aðalfundi bankans fyrir hádegi. Þessi efnahagsstefna stefnir beint í steinvegginn.
Undirritaðir hafa fyrirvara um afgreiðslu þessa frv. Þar sem það er fram komið vegna fyrri mistaka ríkisstj. verður hún ein og stuðningsmenn hennar að bera ábyrgð á mistökum sínum.