10.05.1975
Sameinað þing: 75. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3761 í B-deild Alþingistíðinda. (2892)
215. mál, hafnaáætlun 1975-1978
Geir Gunnarsson:
Herra forseti. Till. til þál. um hafnaáætlun var lögð fyrir hv. Alþ. hinn 3. apríl s. l. Till. kemur til umr. nú fyrst í dag, 10. maí, og þá leggur hæstv. samgrh. til að hún verði ekki afgreidd á þessu þingi, eins og lög þó gera ráð fyrir, heldur verði till. vísað til fjvn. til skoðunar, úrvinnslu og ákvörðunar í sumar. Má þá segja að allvel hafi verið séð fyrir verkefnum handa n. þegar þetta hlutverk bætist við það sem felst í fyrirhuguðum niðurskurði á útgjöldum ríkissjóðs, en um hann á fjvn. að fjalla samkv. nýsettum lögum.
Úr því að hæstv. ráðh. minntist á nýskipaða stjórnarnefnd fyrir Hafnamálastofnunina vil ég aðeins láta það koma fram að ég tel það mjög miður að í þeirri n. skuli ekki eiga neinn sæti úr fjvn. Ég hefði talið að tengsl þyrftu að vera þar á milli, en því miður hefur ekki verið séð fyrir því.
Úr því sem komið er, þegar vika er til þingloka og fjvn. upptekin við afgreiðslu vegáætlunar, þá leiðir af sjálfu sér að hafnaáætlun verður ekki afgreidd á þessu þingi. Er reyndar ekki vanþörf á að nokkur tími verði gefinn til þess að huga rækilega að ýmsum tölum í áætluninni þar sem þegar hefur komið í ljós að þær eru sumar hverjar a. m. k. byggðar á býsna ótryggum grunni, auk þess sem ýmsir atburðir hafa gerst sem valda því og eðlilegar orsakir liggja til þess að endurskoðaðar verði ýmsar tölur eins og hæstv. ráðh. minntist á áðan. Það er ljóst að svo hefur verið á málum haldið að komið verður fram á sumar þegar fyrir liggur að hvaða framkvæmdum verður unnið á þessu ári, bæði að því er varðar hafnarframkvæmdir og aðrar framkvæmdir sem ríkið greiðir að hluta eða öllu leyti, svo sem skólabyggingar, sjúkrahúsbyggingar o.fl., þar sem fjárveitingar samkv. fjárl. hafa nú ekkert raunverulegt gildi lengur eftir að stuðningsflokkar hæstv. ríkisstj. hafa ákveðið að skera niður framlög til framkvæmda í verulegum mæli, og eru þeir embættismenn sem eiga að annast undirbúning og bera ábyrgð á framkvæmdum ekki öfundsverðir af sínu hlutverki. En þessi niðurskurður, sem fyrirhugaður er í krónutölu, kemur til viðbótar stórfelldri rýrnun framkvæmdamáttar fjárveitinga vegna hinnar öru verðbólgu, og í því sambandi má hafa til hliðsjónar að áætlað er að vísitala kostnaðar við vegagerð muni hækka frá því í ágúst s. l. og fram í júní á þessu ári um 59.5%
Við afgreiðslu fjárl. í des. s. l. ræddi ég hafnamál og stöðu hafnarsjóða allítarlega og mun því ekki gera það nú við þessa umr. um hafnaáætlun fyrir árin 1975–1978. Ég ætla aðeins að beina einni fsp. til hæstv. samgrh.
Við afgreiðslu fjárl. fyrir síðustu áramót voru fjárframlög til hafnarsjóða á árinu 1975 samþ. í samræmi við þá áætlun sem hér var lögð fram þá, eða réttara sagt: upphaflegu hafnaáætluninni, sem var lögð fram í des., fyrir afgreiðslu fjárl., hefur nú verið breytt í samræmi við fjárveitingar til hafnargerða í fjárl. fyrir árið 1976. Hins vegar hefur hæstv. ríkisstj. og þar með hæstv. samgrh. nú fengið samþ. á Alþ. lög um efnahagsráðstafanir bar sem fyrst og fremst er gert ráð fyrir allt að 3 500 millj. kr. niðurskurði á fjárveitingum ríkissjóðs á fjárl. ársins 1975. Ég tel því ástæðu til þess að óska eftir því að það komi skýrt fram hjá hæstv. samgrh. hvort hann með flutningi hafnaáætlunar endurskoðaðrar varðandi árið 1975 til samræmis við fjárveitingar á fjárl. er í raun að leggja til að þrátt fyrir lög um niðurskurð á fjárl. verði fjárveitingar til hafnarframkvæmda, fjárhæðir til einstakra hafna veittar og greiddar hafnarsjóðum óskertar á árinu 1975, eins og þær eru tilgreindar í þessari hafnaáætlun og í fjárl., eða hvort hæstv. ráðh. telur sig einungis vera að fullnægja formsatriðum með því að gera hv. Alþ. grein fyrir áætluninni og þeim tölum sem þar eru tilgreindar, þ. e. a. s. hvort hæstv. ráðh. ætlast til að raunverulegt mark sé tekið á þessum tölum eða hvort ætlunin sé, hvað þessum upphæðum liður, að framkvæma það sem felst í yfirlýsingu sem birt var í aðalmálgagni forustuflokks ríkisstj., Morgunblaðinu, hinn 9. apríl s. l. Þar er hafnaáætlunin birt með svo hljóðandi yfirlýsingu, með leyfi hæstv. forseta, og með þeirri yfirlýsingu er birt mynd af hæstv. fjmrh. svona til staðfestingar. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Gera má ráð fyrir, að sá fyrirhugaði samdráttur í ríkisútgjöldum, sem ráðgerður er, eigi eftir að koma fram í umtalsverðri lækkun í þessari grein ríkisframkvæmda sem öðrum.“
Þetta sagði málgagn hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. Vegna óðaverðbólgu hefur framkvæmdamáttur eða raungildi þess fjár, sem veitt var á fjárl. til hafnarframkvæmda víðs vegar um landið á þessu ári, nú þegar rýrnað mjög verulega, eins og ég áðan greindi, en það er svo boðskapur Morgunblaðsins að til viðbótar þessari stórfelldu rýrnun á raungildi fjárveitinga til hafnamála eigi að lækka krónutölu fjárveitinga í umtalsverðum mæli í samræmi við það frv. um efnahagsmál, sem stjórnarflokkarnir hafa nú knúið fram samþykkt á. Ég spyr því: Er hæstv. samgrh. með þeirri hafnaáætlun, sem hann hefur lagt fram og þar sem tilgreindar eru ákveðnar upphæðir til einstakra hafna á árinu 1975, að leggja til að þessar upphæðir verði þó veittar í krónutölu á þessu ári, eða er hann samþykkur þeirri staðhæfingu Morgunblaðsins að þessar fjárhæðir í hafnaáætluninni og fjárl. eigi að lækka í umtalsverðum mæli í krónutölu? Hæstv. ráðh. kynni að svara því til að það sé á valdi fjvn., sem fær bæði niðurskurðarheimildina og hafnaáætlunina til meðferðar, að gera till. um raunverulegar fjárveitingar til hafna, hvort þær eigi að standa samkv. þessari áætlun eða þar eigi að skera niður í samráði við boðskap Morgunblaðsins. En ég spyr um till. hæstv. ráðh. sjálfs. Eru þær þessar, sem hann hefur nú gert grein fyrir, eða er hann samþykkur yfirlýsingu aðalmálgagns forustuflokks í ríkisstj. um að þessar tölur um fjárveitingar til hafnarframkvæmda á árinu 1975 eigi að skera niður í umtalsverðum mæli?